Dagur Gautason og félagar í Arendal höfðu betur gegn Drammen, 32:30, í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Dagur var stórgóður og skoraði fimm mörk fyrir Arendal. Ísak Steinsson var í markinu hjá Drammen og varði fjögur skot eða var með 25% markvörslu.
Arendal situr í sjötta sæti deildarinnar með 10 stig, jafn mörg stig og Drammen sem er í sjöunda sæti.