Lærisveinar Rúnars lögðu Ými og félaga

Andri Már Rúnarsson í leik með íslenska landsliðinu.
Andri Már Rúnarsson í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/Jozo Cabraja

Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í Leipzig lögðu Göppingen, 27: 25, í efstu deild þýska handboltans í dag.

Andri Már Rúnarsson, sem er sonur Rúnars, skoraði fimm mörk fyrir Leipzig. Samherji hans Viggó Kristjánsson skoraði þrjú mörk. Ýmir Örn Gíslason gerði tvö mörk fyrir Göppingen.

Leipzig situr í 10. sæti deildarinnar með 10 stig eftir 10 leiki. Göppingen er í 14. sæti með sex stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert