Valur fær stórlið Vardar frá Skopje í Norður-Makedóníu í heimsókn á Hlíðarenda í 5. umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld.
Valur er fyrir leikinn á botni F-riðils með eitt stig og Vardar er sæti ofar með tvö stig. Eini sigur Vardar til þessa kom einmitt gegn Val í Skopje í síðasta mánuði.
Mikið er í húfi í leiknum þar sem takist Valsmönnum að vinna og Porto tapar gegn Melsungen mun Valur fara í hreinan úrslitaleik við Porto um sæti í 16-liða úrslitum í Portúgal.
Eina stig Vals til þessa kom einmitt gegn Porto á eiginlegum heimavelli sínum í fyrstu umferð í Kaplakrika.
FH er einnig í eldlínunni í dag en liðið heimsækir Íslendingalið Gummersbach til Þýskalands í H-riðli.
FH er í neðsta sæti riðilsins með tvö stig líkt og Sävehof sæti ofar. Leikur FH hefst klukkan 17.45.
Sem fyrr býður Valur upp á dagskrá fyrir leikinn í Valsheimilinu sem hefst klukkan 18.30 þegar “fan-zone” fyrir bæði krakka og fullorðna opnar.
Klukkan 19.10 fer Anton Rúnarsson aðstoðarþjálfari yfir mótherjann á nokkurs konar töflufundi.
Tuttugu mínútum síðar hefst svo kynning á leikmönnum með tilheyrandi ljósasýningu og leikurinn hefst svo klukkan 19.45.