Kristján Örn Kristjánsson var á meðal markahæstu manna þegar lið hans Skanderborg vann sterkan sigur á Ringsted, 35:31, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Skanderborg fór með sigrinum upp í fimmta sæti deildarinnar þar sem liðið er með 14 stig eftir tólf leiki.
Kristján Örn var næstmarkahæstur í leiknum með átta mörk auk þess sem hann gaf eina stoðsendingu.