Fram og Stjarnan áttust við í 11. umferð Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld og lauk leiknum með sigri Fram 35:26.
Eftir leikinn er Fram í þriðja sæti deildarinnar með 15 stig en FH og Afturelding eru sömuleiðis með 15 stig en eiga leiki til góða líkt og Valur sem er í fjórða sætinu. Stjarnan er í 7. sæti með 10 stig og getur lið Gróttu komist í yfir Stjörnuna með sigri á Aftureldingu annað kvöld.
Lið Fram byrjaði mjög vel í kvöld og skoraði fimm fyrstu mörk leiksins áður en Stjarnan skoraði sitt fyrsta mark. Þá voru gestirnir úr Garðabæ búnir að klúðra vítaskoti og hraðaupphlaupi.
Stjörnumenn tóku leikhlé í stöðunni 5:0 og eftir það unnu Garðbæingar sig inn í leikinn og náðu að minnka muninn niður í eitt mark í stöunnu 8:7 fyrir Fram.
Eftir það skildu leiðir aftur og Framarar juku muninn hægt og þétt. Náðu þeir mest 6 marka forskoti í stöðunni 18:11 en þann mun lagaði Stjarnan með síðasta marki hálfleiksins.
Staðan í hálfleik 18:12.
Markahæstur í liði Fram í fyrri hálfleik voru þeir Rúnar Kárason, Ívar Logi Styrmisson o Dagur Fannar Möller, allir með 3 mörk. Arnór Máni Daðason varði 9 skot, þar af tvö vítaskot.
Í liði Stjörnunnar var Pétur Árni Hauksson með 3 mörk og varði Adam Thorstensen 5 skot, þar af eitt vítaskot.
Seinni hálfleikur var í raun ekki frábrugðin þeim fyrri. Stjörnumenn héldu áfram að misnota góð tækifæri til að komast aftur inn í leikinn sem gaf heimamönnum í Fram tækifæri til að viðhalda forskotinu og auka það.
Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var staðan 28:21 fyrir Fram, 7 marka munur og ekkert benti til þess að Garðbæingar næðu að vinna upp þann mun.
Þegar tæpar 10 mínútur voru eftir af leiknum kom markvörðurinn Arnór Máni Daðason Fram 10 mörkum yfir í leiknum í stöðunni 32:22 og leiknum í raun lokið.
Garðbæingar reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn en náðu ekki lengra en svo að leiknum lauk með sigri Fram 35:36.
Fram leikur næst í deildinni gegn FH á meðan Stjarnan leikur gegn HK.
Markahæstir í liði Fram voru þeir Marel Baldvinsson og Ívar Logi Styrmisson með 5 mörk.
Arnór Máni Daðason varði 16 skot, þar af 3 vítaskot og skoraði 4 mörk og er klárlega maður leiksins.
Markahæstur í liði Stjörnunnar var Hans Jörgen Ólafsson með 5 mörk. Adam Thorstensen varði 10 skot, þar af tvö vítaskot.