Viggó Kristjánsson átti magnaðan leik fyrir Íslendingalið Leipzig þegar liðið hafði betur gegn Bietigheim, 29:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.
Viggó gerði sér lítið fyrir og skoraði níu mörk ásamt því að gefa tvær stoðsendingar. Var hann markahæstur í leiknum.
Andri Már Rúnarsson lét einnig vel að sér kveða og skoraði þrjú mörk auk þess að gefa þrjár stoðsendingar fyrir Leipzig, sem faðir hans Rúnar Sigtryggsson þjálfar.
Leipzig er í tíunda sæti með 12 stig.