Topplið Melsungen í þýsku 1. deildinni mátti sætta sig við óvænt tap fyrir Eisenach, 32:31, á útivelli í kvöld.
Melsungen heldur toppsætinu, að minnsta kosti að sinni, með 18 stig á meðan Eisenach er með tíu stig í 11. sæti.
Elvar Örn Jónsson var atkvæðamikill hjá Melsungen en hann skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað hjá liðinu.