Dagur Gautason fór á kostum í tapi norska liðsins Arendal fyrir Diomidis Argous frá Grikklandi, 36:33, í 32-liða úrslitum Evrópubikar karla í handknattleik í Grikklandi í dag.
Arendal er úr leik eftir samanlagt tap, 59:52, en báðir leikirnir fóru fram í Grikklandi og Diomidis vann þann fyrri í gær, 23:19.
Dagur var langmarkahæstur með ellefu mörk í leiknum en liðsfélagi hans Árni Bergur Sigurbergsson var ekki með.