Magdeburg vann afar sterkan heimasigur á Barcelona, 28:23, á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.
Íslendingarnir í liði Magdeburgar áttu gott kvöld gegn spænska stórliðinu. Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson gerði fimm.
Magdeburg fór upp í sjö stig og í fimmta sæti með sigrinum. Barcelona er enn á toppi riðilsins með 15 stig, þremur stigum á undan Pick Szeged, þar sem Janus Daði Smárason er leikmaður.