Hornamaðurinn Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði glæsilegt mark fyrir Val er liðið mætti Porto frá Portúgal á útivelli í Evrópudeildinni í handbolta í gærkvöldi.
Í stöðunni 6:6 brunaði Úlfar Páll upp í hraðaupphlaup og skoraði aftur fyrir bak. Hann var markahæsti leikmaður Vals í leiknum með sex mörk, en Porto vann 37:29.
Instagram-síða Evrópudeildarinnar birti markið glæsilega, sem sjá má hér fyrir neðan.