Viktor sterkur í stórsigri

Viktor Gísli Hallgrímsson er leikmaður Wisla Plock.
Viktor Gísli Hallgrímsson er leikmaður Wisla Plock. Ljósmynd/Kristján Orri

Viktor Gísli Hallgrímsson var öflugur í 41:21-sigri Wisla Plock gegn Zabrze í efstu deild Póllands í handbolta í dag.

Viktor varði níu skot og var með 45 prósent vörslu fyrir Wisla Plock sem er með 54 stig á toppi deildarinnar og hefur unnið alla leiki á tímabilinu hingað til. Liðið er með þriggja stiga forskot á Kielce sem er í öðru sæti.

Þetta var síðasti leikur liðsins á árinu og síðasti leikur liðsins fyrir landsleikjapásu en HM í handbolta fer fram í Danmörku, Noregi og í Króatíu frá 14. janúar til 2. febrúar 2025.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert