Ísland í öðru sæti í Þýskalandi

Íslenska liðið hafnaði í öðru sæti.
Íslenska liðið hafnaði í öðru sæti. Ljósmynd/HSÍ

Íslenska U19-ára landslið karla í handbolta mátti þola tap gegn Þýskalandi, 31:27, í úrslitaleik á alþjóðlegu móti í Merzig í Þýskalandi í kvöld.

Staðan í hálfleik var jöfn, 12:12, en þýska liðið reyndist sterkara í seinni hálfleik og sigldi sigri í höfn.

Íslenska liðið vann fjóra af fimm leikjum sínum á mótinu en liðið tryggði sér sæti í úrslitum með sigri á Serbíu fyrr í dag.

Mörk Íslands: Ágúst Guðmundsson 4, Garðar Ingi Sindrason 4, Stefán Magni Hjartarson 4, Baldur Fritz Bjarnason 3, Elís Þór Aðalsteinsson 3, Andri Erlingsson 2, Bessi Teitsson 2, Leó Halldórsson 2, Daníel Bæring Grétarsson 1, Daníel Montoro 1, Max Emil Stenlund 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert