Áfall fyrir Eyjamenn

Marta Wawrzynkowska hefur verið einn besti markvörður deildarinnar undanfarin ár.
Marta Wawrzynkowska hefur verið einn besti markvörður deildarinnar undanfarin ár. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Tímabili pólsku handknattleikskonunnar Mörtu Wawrzynkowska hjá ÍBV er væntanlega lokið en hún er með rifu í krossbandi í hné.

Handbolti.is greinir frá. Marta hefur verið einn besti markvörður úrvalsdeildarinnar undanfarin ár og er um mikið áfall fyrir Eyjaliðið að ræða.

Marta kom til ÍBV árið 2019. Hún hefur leikið átta leiki á yfirstandandi tímabili og verið með tæplega 40 prósenta markvörslu samkvæmt HBStatz.

ÍBV er í sjöunda sæti af átta liðum í úrvalsdeildinni með sex stig, tveimur meira en botnlið Gróttu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert