40. sigur Vals í röð

Lovísa Thompson hjá Val og Berglind Þorsteinsdóttir úr Fram eigast …
Lovísa Thompson hjá Val og Berglind Þorsteinsdóttir úr Fram eigast við í kvöld. mbl.is/Karítas

Valur hafði betur í toppslagnum í úrvalsdeild kvenna í handbolta á Hlíðarenda í dag og sigraði Fram 31:28.

Valur er á toppi deildarinnar með 22 stig og Fram er í öðru sæti með 16 stig.

Fyrri hálfleikur var hnífjafn og það munaði aldrei meira en tveimur mörkum á liðunum sem skiptust á að vera í forystu. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var Valur tveimur mörkum yfir, 9:7, en Framarar gáfu ekkert eftir. Þegar 23 mínútur voru liðnar var staðan 14:12 fyrir Fram eftir nokkrar klaufalegar sóknir hjá heimakonum í röð. Valur tók þá leikhlé og var einu marki yfir í hálfleik, 16:15.

Seinni hálfleikur byrjaði jafnt og staðan var 20:20 eftir tíu mínútur en eftir það sigldu Valsarar fram úr og komust mest fimm mörkum yfir, 30:25, og leikurinn endaði 31:28.

Leikurinn var 40. sigur Vals í röð í öllum keppnum.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Valur 31:28 Fram opna loka
60. mín. Alfa Brá Hagalín (Fram) skoraði mark
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert