Góður útisigur Íslendingaliðsins

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skorar fyrir Kristianstad gegn Val í Evrópuleik …
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skorar fyrir Kristianstad gegn Val í Evrópuleik liðanna í nóvember. mbl.is/Ólafur Árdal

Íslendingaliðið Kristianstad náði í kvöld í dýrmæt stig á útivelli þegar það vann Hallby á útivelli í sænsku úrvalsdeild kvenna í handknattleik, 32:25.

Kristianstad hafði tapað sjö af fyrstu tíu leikjum sínum á tímabilinu og var í tíunda sæti af tólf liðum fyrir leikinn. Liðið er nú með átta stig í níunda sætinu. Hallby er í sjötta sæti með 13 stig og missti af tækifæri til komast í þriðja sæti deildarinnar.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Berta Rún Harðardóttir voru báðar með eitt mark og eina stoðsendingu fyrir Kristianstad í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert