Fram lenti í talsverðu basli með ÍR í úrvalsdeild kvenna í handknattleik í kvöld þegar liðin mættust í Úlfarsárdal en hafði þó betur að lokum, 22:20.
Fram náði þar með Haukum að stigum í öðru til þriðja sætinu með 18 stig, fjórum stigum á eftir Val, en ÍR er áfram í sjötta sæti af átta liðum með 7 stig.
Í hálfleik benti þó allt til þess að Fram myndi vinna öruggan sigur en þá var staðan 14:9, þeim bláklæddu í hag.
En ÍR-konur létu finna fyrir sér í seinni hálfleiknum, söxuðu smám saman á forskotið og höfðu minnkað muninn í eitt mark, 18:17, þegar hálfleikurinn var hálfnaður.
Fram komst í 21:18 en ÍR svaraði tvisvar og fékk tækifæri til að jafna metin á lokamínútunni. Ethel Gyða Bjarnasen varði þá í marki Fram og Íris Anna Gísladóttir skoraði og tryggði Fram sigurinn, 22:20.
Steinunn Björnsdóttir skoraði 5 mörk fyrir Fram, Þórey Rósa Stefánsdóttir 4 og Íris Anna Gísladóttir 3 en Sara Dögg Hjaltadóttir var atkvæðamest ÍR-inga með 7 mörk.