Báðir leikir Vals og Slavia Prag frá Tékklandi í átta liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handknattleik fara fram á heimavelli Vals á Hlíðarenda.
Samkvæmt heimasíðu Evrópska handknattleikssambandsins fer fyrri leikurinn, heimaleikur Vals, fram á Hlíðarenda laugardaginn 22. febrúar klukkan 16.00 og sá síðari, heimaleikur Slavia, á sama stað sunnudaginn 23. febrúar klukkan 16.00.
Haukar munu hins vegar leika á hefðbundinn hátt gegn öðru tékknesku liði Hazena Kynzvart í sömu keppni, heima og heiman.
Liðin mætast fyrst í Cheb í Tékklandi laugardaginn 15. febrúar klukkan 15 að íslenskum tíma og seinni leikurinn verður á Ásvöllum í Hafnarfirði laugardaginn 22. febrúar klukkan 16.30.