Handknattleiksmennirnir Daníel Bæring Grétarsson og Sigurjón Bragi Atlason hafa skrifað undir nýja samninga við uppeldisfélag sitt Aftureldingu.
Daníel er 18 ára línumaður og öflugur varnarmaður og Sigurjón Bragi er 18 ára markvörður.
Báðir eru þeir í U19-ára landsliði Íslands og hafa komið við sögu hjá meistaraflokki Aftureldingar á yfirstandandi tímabili.
„Framtíðin er björt hjá okkur í Mosfellsbænum og höldum við áfram að byggja til framtíðar á uppöldum og efnilegum leikmönnum úr Mosó!“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Aftureldingar.