Þýska handknattleiksliðið Flensburg er komið með nýjan þjálfara en Dagur Sigurðsson var orðaður við stöðuna á dögunum.
Þjálfaranum Nikolaj Krickau var sagt upp störfum í desember og nú hefur Slóveninn Ales Pajovic verið ráðinn í hans stað.
Pajovic, sem er 47 ára gamall, hefur þjálfað karlalandslið Austurríkis undanfarin sex ár og tvívegis komið því í átta liða úrslitin á EM. Á yfirstandandi heimsmeistaramóti endaði Austurríki í 17. sæti og var í milliriðlinum í harðri keppni við Ungverjaland, Holland og Norður-Makedóníu um sæti í átta liða úrslitunum.
Hann var sjálfur leikmaður í fremstu röð með stórliðum á borð Magdeburg, Kiel, Ciudad Real og Celje Lasko.
Flensburg er í fimmta sæti þýsku 1. deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Melsungen og tveimur stigum á eftir Füchse Berlín, Kiel og Hannover-Burgdorf.