Andrea Jacobsen, landsliðskona í handbolta, hefur ekkert spilað með þýska liðinu Blomberg-Lippe á árinu vegna ökklameiðsla sem hún varð fyrir á æfingu.
Eru meiðslin alvarlegri en í fyrstu var talið en fyrst um sinn var búist við að Andrea yrði frá í nokkra daga.
Hún sagði í samtali við handbolta.is í dag að liðband hafi slitnað og að mar sé í beini. Eftir myndatöku var áætlað að hún yrði frá í 4-6 vikur og ætti því að vera stutt í endurkomuna.