Pólverjinn farinn frá KA

Alexander Petersson og Kamil Pedryc í baráttunni í leik Vals …
Alexander Petersson og Kamil Pedryc í baráttunni í leik Vals og KA í október. mbl.is/Árni Sæberg

Pólski handknattleiksmaðurinn Kamil Pedryc hefur yfirgefið herbúðir KA. Hann gekk til liðs við Akureyringa síðastliðið sumar.

Handbolti.is greinir frá því að Pedryc sé snúinn aftur til Zaglebie Lubin í heimalandinu, þaðan sem hann kom til KA.

Pedryc skoraði 13 mörk í 12 leikjum með KA í úrvalsdeildinni á fyrri hluta tímabilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert