Snýr aftur heim á Hlíðarenda

Þorgils Jón Svölu Baldursson er kominn aftur í Val.
Þorgils Jón Svölu Baldursson er kominn aftur í Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleiksmaðurinn Þorgils Jón Svölu Baldursson hefur gert samkomulag við uppeldisfélagið Val og gert við það tveggja og hálfs árs samning.

Þorgils kemur til Vals frá Karlskrona í Svíþjóð, þar sem hann hefur verið undanfarið eitt og hálft ár.

Línumaðurinn hafði leikið með Val allan ferilinn þegar hann skipti yfir til Svíþjóðar og unnið fjölda titla með Hlíðarendafélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert