Handknattleiksdeild Vals hefur ráðið Anton Rúnarsson sem næsta þjálfara meistaraflokks kvenna. Tekur hann við liðinu af Ágústi Jóhannssyni sem tekur við karlaliðinu eftir tímabilið.
Anton hefur gert samning til ársins 2028. Hann þekkir vel til hjá Val því hann spilaði með liðinu á sínum tíma og hefur undanfarið hálft annað ár verið aðstoðarþjálfari karlaliðsins.
Hann er uppalinn hjá Val og hefur undanfarin ár einnig þjálfað yngri flokka félagsins. Hann lék aldrei með öðru félagi á Íslandi en var um tíma leikmaður Nordsjælland í Danmörku og Emsdetten í Þýskalandi.
Valur er Íslandsmeistari síðustu tveggja ára og vermir toppsæti úrvalsdeildarinnar.