Íslandsmeistararnir fóru hamförum

Þórey Anna Ásgeirsdóttir í þann mund að skora eitt af …
Þórey Anna Ásgeirsdóttir í þann mund að skora eitt af tólf mörkum sínum í kvöld. mbl.is/Karítas

Íslands-, deildar- og bikarmeistarar Vals fóru illa með Stjörnuna þegar liðin mættust í 14. umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik í Garðabænum í kvöld. Lokatölur urðu 40:24.

Valur er sem fyrr á toppi deildarinnar, nú með 26 stig. Stjarnan er í fimmta sæti með tíu stig.

Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik og var staðan til að mynda 12:9 fyrir Val þegar hann var hálfnaður.

Þá settu Valskonur í fluggír, röðuðu inn mörkum og voru níu mörkum yfir, 22:13, að loknum fyrri hálfleik.

Gestirnir voru ekki síður á flugi í síðari hálfleik þar sem Valur skoraði fyrstu fimm mörk hálfleiksins og komust þannig 14 mörkum yfir, 27:13, eftir rúmlega 36 mínútna leik.

Vélin mallaði áfram og Valur vann að lokum einstaklega öruggan 16 marka sigur.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir fór með himinskautum og skoraði 12 mörk úr jafnmörgum skotum fyrir Val. Lovísa Thompson, Hildigunnur Einarsdóttir og Thea Imani Sturludóttir bættu við sex mörkum hver.

Hafdís Renötudóttir átti stórleik í marki Vals og varði 14 skot. Var hún með 41 prósent markvörslu.

Hjá Stjörnunni var Embla Steindórsdóttir markahæst með átta mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert