Sveinbjörn Pétursson átti stórleik í marki Hapoel Ashdod þegar liðið mátti sætta sig við tap fyrir Maccabi Le Zion, 37:33, í efri hluta efstu deildar Ísraels í handknattleik í kvöld.
Sveinbjörn er í stóru hlutverki hjá Ashdod og varði alls 14 skot í leiknum.
Hann gekk til liðs við félagið í sumar.
Ashdod er í sjötta og neðsta sæti efri hluta deildarinnar með 13 stig eftir 13 leiki.