„Þetta er besta afmælisgjöfin,“ segir Þóra Höskuldsdóttir sem vann B-úrslitin í ungmennaflokki á Huldari frá Sámsstöðum með einkunnina 8,62. Hún á afmæli í dag og er 19 ára. Þóra segir Huldar vera flugrúman og viljugan hest sem gaman er að vinna með. „Við ætlum allavega að gera okkar besta í A-úrslitum á laugardaginn,“ segir hún. Þóra keppir fyrir hestamannafélagið Létti á Akureyri. Þau mæta í A-úrslit í ungmennaflokki sem eru á laugardaginn eins og öll A-úrslit á mótinu.
Hér má sjá niðurstöður úr B-úrslitum í ungmennaflokki.