Lokakvöld Meistaradeildar í hestaíþróttum hefur verið fært aftur um einn dag en það mun fara fram föstudaginn 27. mars í Samskipahöllinni.
Þrjú mót eru eftir í Meistaradeildinni, en fimm greinar. Næsta keppni fer fram á sunnudaginn en þá verður keppt í gæðingafimi. Keppni hefst klukkan 12:10 í Samskipahöllinni. Nánari upplýsingar eru á vef Meistaradeildarinnar www.meistaradeild.is.
Dagskrá:
8. mars - Gæðingafimi, Samskipahöllin
14. mars - Skeiðmót, Selfoss
27. mars - Lokamót, tölt og flugskeið, Samskipahöllin