„Ég stefni alltaf á að sigra“

Árni Björn hefur verið ríkjandi töltmeistari landsmóts í áratug. Í …
Árni Björn hefur verið ríkjandi töltmeistari landsmóts í áratug. Í fyrra á Ljúf frá Torfunesi en mætir með Kastaníu frá Kvistum í ár. mbl.is/Hákon Pálsson

„Ég stefni alltaf á að sigra, alveg sama hvað það er,“ segir knapinn Árni Björn Pálsson spurður að því hvort hann ætli að vinna töltkeppnina á Landsmóti Hestamanna sem fram fer í Víðidal í Reykjavík í næstu viku. 

Árni Björn hefur verið ríkjandi töltmeistari landsmóts í heilan áratug eða frá árinu 2014. Hann vann töltkeppnina árin 2014 og 2016 á Stormi frá Herríðarhóli og árin 2018 og 2022 á Ljúf frá Torfunesi. Í ár mætir hann með Kastaníu frá Kvistum. 

„Ég mun gera harða atlögu að þessu en svo verður bara að koma í ljós hvort það dugi eða ekki,“ segir Árni í samtali við mbl.is. 

Hart verður barist í töltinu

Ljóst er að töltkeppnin verður afar spennandi í ár. Samkvæmt stöðulista ársins eru Páll Bragi Hólmarsson og Vísir frá Kagaðarhóli efstir með einkunnina 8,47, Árni og Kastanía þar á eftir með 8,43 og Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti þriðju með 8,20. 

Forkeppni í tölti T1 verður riðin á fimmtudagskvöld, 4. júlí kl. 20:05 og munu úrslitin ráðast á laugardagskvöldinu kl. 21:10.

Víðidalur er heimavöllur Árna Björns

Árni hóf sinn feril í hestamennsku í Víðidal og lýst því svaka vel á mótið framundan. „Þetta er náttúrulega á besta stað í rauninni á mínum heimavelli, ég hef alltaf verið í hestamannafélaginu Fáki bara frá því að ég var smákrakki.“

Veistu eitthvað hvað þú ert að sýna mörg hross á mótinu?

„Nei ég er nú ekki alveg með tölu á því sko, hvað þau voru mörg sem komust inn sko. Ég bara er ekki alveg með þetta á hreinu,“ segir hann.

Í Víðidal er öllu tjaldað til. Hér er tjald að …
Í Víðidal er öllu tjaldað til. Hér er tjald að rísa við reiðhöllina sem mun eflaust innihalda góða afþreyingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Finnst þér líklegt að þessir helstu knapar viti ekki heldur hvað þeir eru með mörg hross á mótinu?

„Ég veit ekki hvernig þetta er hjá þeim,“ segir Árni hlæjandi. „Það er örugglega hægt að finna þetta í einhverri statistík einhversstaðar sko.“

Eftir því sem blaðamaður kemst næst, er Árni með 27 hross skráð til leiks á mótið, sjö í íþrótta- og gæðingakeppni og tuttugu kynbótahross.  

Sterkasta mót í heimi

Árni hvetur alla Reykjavíkurbúa og landsmenn til að mæta á Landsmót og láta ekki þennan stórviðburð framhjá sér fara. 

„Þetta er náttúrulega stærsta svona hátíð með íslenska hestinn í heiminum og bestu hrossin og bestu knaparnir samankomnir á einum stað. Þetta er sterkasta mót sem við erum með fyrir íslenska hestinn,“ segir Árni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert