Jakob Svavar og Kór efstir

Jakob Svavar Sigurðsson stendur efstur með Kór frá Skálakoti.
Jakob Svavar Sigurðsson stendur efstur með Kór frá Skálakoti. Ljósmynd/Kolla Gr.

Jakob Svavar Sigurðsson og Kór frá Skálakoti standa efstir eftir spennandi forkeppni í b-flokki með 8,89 í einkunn.

Jafnir í öðru sæti með 8,86 í einkunn eru Hlynur Guðmundsson á Trommu frá Höfn og Helgi Þór Guðjónsson með Þröst frá Kolsholti 2. Þriðju, og einnig jöfn, eru Arnhildur Helgadóttir á Völu frá Hjarðartúni og Sigurður Sigurðarson á Rauðu-List frá Þjóðólfshaga með 8,81.

Alls 114 knapar voru skráðir til leiks í b-flokki og komast efstu 30 áfram í milliriðill. Mjótt er á milli efstu keppenda og mega áhorfendur vænta spennandi keppni í milliriðlinum á fimmtudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert