Knattspyrnumaðurinn Luis Suarez kom til Úrúgvæ í nótt og fékk kappinn höfðinglegar móttökur. Forseti landsins mætti út á flugvöll til að taka á móti honum og heimamenn kyrjuðu nafn hans í gríð og erg. Eltu hann meira að segja heim til mömmu hans.
Luis Suarez, með börnunum sínum Benjamin og Delfina heilsar aðdáendum sínum.
AFP
Forseti landsins Jose Mujica mætti til að taka á móti Suarez en varð frá að hverfa því vélin tafðist um nokkra klukkutíma.
AFP
Fjöldi manns mættu á flugvöllinn.
AFP
Suarez er hetja í Úrugvæ.
AFP
Á skiltinu stendur; FIFA er spillt. Við styðjum þig Luisito.
AFP