Chiellini: Bitið gleymt og grafið

Giorgio Chiellinni og Luis Suárez.
Giorgio Chiellinni og Luis Suárez. AFP

Giorgio Chiellini varnarmaður Ítalíu sem Luis Suárez framherji Úrúgvæ beit í öxlina í landsleik Ítalíu og Úrúgvæ í síðustu viku á HM í knattspyrnu í Brasilíu svarar afsökunarbeiðni Suárez á Twitter í dag og segir málið gleymt og grafið.

Þá segist Chiellinni vona að dómur FIFA yfir Suárez verði mildaður, en Suárez fékk 9 landsleikja bann og 4 mánaða bann frá öllum fótbolta að auki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert