„Þetta verður erfiður leikur. Mjög ólíkur síðasta leik. Við hlökkum til,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson á fréttamannafundi íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem nú stendur yfir á Volgograd Arena í Rússlandi.
Spurður út í ástand vallarins í þessum mikla hita í Volgorad sagði Aron;
„Þetta var mun betra eftir að þeir vökvuðu hann. Boltinn festist svolítið þegar völlurinn er þurr. Það var gott að fá þessa æfingu á vellinum og venjast honum fyrir leikinn,“ sagði Aron.