Frakkland og Króatía mætast í úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu karla kl. 15:00 í Moskvu í Rússlandi í dag.
Gríðarleg stemning er í Frakklandi og Króatíu fyrir leiknum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum en leiknum verða gerð ítarleg skil hér á mbl.is í beinni textalýsingu síðar í dag.
Það voru læti hjá stuðningsmönnum Frakka í Lyon í dag.
AFP
Stemning hjá króatískum stuðningsmönnum í rigningunni í Zagreb.
AFP
Stuðningsmaður Frakka í Lyon.
AFP
Franskur drengur á litlum bíl með franska fánanum í Nice í dag.
AFP
Luzniki-völlurinn í Moskvu lítur vel út og tekur 80 þúsund manns í sæti.
AFP
Stuðningsmenn Frakka í París fyrir framan Sigurbogann.
AFP
Stytta af Ban Jelacic, 19. aldar uppreisnarmanni í miðborg Zagreb, er komin í króatísku fánalitina.
AFP
Stemning á ströndinni í Nice í dag.
AFP
Stuðningsmenn Frakka standa á strætóskýli með Eiffelturninn í bakgrunni.
AFP
Það rigndi í Zagreb í dag.
AFP
Treyjan með nafni Luka Modric er vinsæl þessa dagana.
AFP