Það er ekkert að fótboltanum sjálfum

Antoine Griezmann og Julian Álvarez mætast í úrslitaleik Frakklands og …
Antoine Griezmann og Julian Álvarez mætast í úrslitaleik Frakklands og Argentínu á sunnudaginn. AFP/Juan Mabromata/Glyn Kirk

Heimsmeistarakeppni í fótbolta heppnast alltaf vel, hvar sem hún er haldin. Hún á sér engan líka, þetta er mesti fjölþjóðaviðburður heims.

Philipp Lahm skrifar pistla um knattspyrnu fyrir Morgunblaðið/mbl.is.
Philipp Lahm skrifar pistla um knattspyrnu fyrir Morgunblaðið/mbl.is. Ljósmynd/Philippe Arlt

Ellefu menn eða konur í hvoru liði, jafnvel allt að sautján samkvæmt nýju reglunum um varamenn. Allar heimsálfurnar eru með, Argentína er komin í úrslit en tapaði í Katar fyrir Asíuþjóð, Sádi-Arabíu, og slapp naumlega við framlengingu gegn Ástralíu. Afríka er í undanúrslitum í fyrsta skipti, og um leið Arabía, þökk sé Marokkó.

Phil­ipp Lahm skrif­ar þenn­an pist­il. Hann var fyr­irliði þýska landsliðsins í knatt­spyrnu þegar það varð heims­meist­ari árið 2014 og lék með Bayern München í fimmtán ár. Hann er móts­stjóri Evr­ópu­móts karla sem fram fer í Þýskalandi árið 2024. Pistl­ar hans, „Mitt sjón­ar­horn“, birt­ast reglu­lega í Morg­un­blaðinu og/​​​​​eða mbl.is. Þeir eru skrifaðir í sam­vinnu við Oli­ver Fritsch, íþrótta­rit­stjóra þýska net­miðils­ins Zeit On-line, og birt­ast í fjöl­miðlum nokk­urra Evr­ópu­landa.

Heimsbyggðin hefur sammælst um reglurnar sem gilda á fótboltamótum. Leikurinn býður upp á vangaveltur um fjölmarga hluti. Fór boltinn út af áður en Japan skoraði sigurmarkið gegn Spáni? Er hægt að úrskurða um rangstöðu á stafrænan hátt eins og tæknitröllin telja? Er fáni Palestínu pólitískur og hvað merkir hann? Var nauðsynlegt að vera með One Love fyrirliðabandið? Hvaða skilaboð senda múslímskir íþróttamenn þegar þeir kyssa mæður sínar og dansa við þær frammi fyrir heimsbyggðinni eftir sigurleiki?

Argentínumenn fögnuðu sigri á Hollandi eftir vítaspyrnukeppni.
Argentínumenn fögnuðu sigri á Hollandi eftir vítaspyrnukeppni. AFP/Juan Mabromata

Fengu eigin ástríðu í andlitið

Á heimsmeistaramóti er sagan skrifuð innan vallar. Dramatískasti leikurinn var endurtekningin á úrslitaleik HM 1978 þegar Argentína mætti Hollandi. Snillingurinn Lionel Messi læddist um völlinn þar hann kom með eitraða sendingu og Argentína var komin með forystu. Argentína var með undirtökin eftir það, en leikurinn tók óvænta stefnu þegar Hollendingar köstuðu frá sér Ajax-skólanum og hleyptu öllu í bál og brand.

Argentínumenn fengu eigin ástríðu beint í andlitið, misstu tökin á leiknum, óttuðust að missa niður 2:0 forskotið og áttu á hættu að missa menn af velli. Hefðu þeir ekki náð að rétta sig af í framlengingunni hefðu þeir verið slegnir út. Að lokum unnu þeir í vítakeppni.

Endurkoma Griezmanns

Argentína mætir Frakklandi í úrslitaleiknum. Í Katar höfum við séð endurkomu Antoine Griezmanns. Hann varð heimsmeistari 2018 en eftir það hallaði undan fæti hjá honum með sínu félagsliði.

En nú stjórnar hann enn og aftur sóknarleik Frakka með sínum úthugsuðu sendingum og hárnákvæmu fyrirgjöfum, og nýtur virðingar samherjanna sem hann matar á óeigingjarnan hátt.

Didier Deschamps hefur orðið heimsmeistari sem leikmaður og þjálfari.
Didier Deschamps hefur orðið heimsmeistari sem leikmaður og þjálfari. AFP/Franck Fife

Besti fótboltamaðurinn í þjálfarahópnum

Þetta er ekki síst að þakka besta fótboltamanninum í hópi þjálfaranna 32 á mótinu. Didier Deschamps getur orðið fyrsti þjálfari sögunnar til að verja heimsmeistaratitilinn. Bestu þjóðirnar eiga að vera með bestu leikmennina við stjórnvölinn - eða mjög þroskaða persónuleika.

Að stjórna hópi margra af bestu leikmönnum heims er verkefni fyrir menn eins og Mário Zagallo eða Franz Beckenbauer, sem urðu, eins og Deschamps, heimsmeistarar bæði sem leikmenn og þjálfarar. Til að ná því besta út úr manni með einstaka hæfileika eins og Kylian Mbappé þarf slíka reynslu.

Luka Modric er fullkominn miðjumaður, að mati Lahms.
Luka Modric er fullkominn miðjumaður, að mati Lahms. AFP/Jack Guez

Luka Modric og Wout Weghorst

Í liðsíþrótt er „við“ lykilorðið. En það útilokar ekki að „ég“ geti blómstrað, á mismunandi hátt. Luka Modric er enn, 37 ára gamall, fullkominn miðjumaður því hann heldur jafnvæginu í sínu liði. Wout Weghorst sneri leiknum við Argentínu næstum því við með sínum einfalda en árangursríka leikstíl, og kom svo heimsbyggðinni á óvart með aukaspyrnubrellu.

Liðsheildin er ekki algild, fótboltinn með sínar evrópsku rætur er ekki einvaldur. Reglurnar eru þær sömu fyrir alla, þær tryggja samstöðu. Fótboltinn er vinsælasta íþrótt heims.

Gianni Infantino forseti FIFA og Khalid bin Khalifa bin Abdulaziz …
Gianni Infantino forseti FIFA og Khalid bin Khalifa bin Abdulaziz Al Thani forsætisráðherra Katar. AFP/Fabrice Coffrini

Fólkið sem stjórnar skemmir ásýndina

Það er ekkert að fótboltanum sjálfum. En fólkið sem stjórnar honum og markaðsvæðir hann skemmir ásýnd hans. Það gleymir að það er bara í þjónustuhlutverki fyrir heimsbyggðina.

Gianni Infantino er treyst fyrir öllu. Sumir telja að tækniliðið í VAR-herbergjunum hafi slæm áhrif á leikinn þegar það tekur ákvarðanir um vítaspyrnur eða reiknar út í millimetrum hvort boltinn hafi farið yfir línuna eða ekki. Augljós mistök eins og þegar mark Franks Lampards gegn okkur árið 2010 var dæmt af á að leiðrétta. En gervigreindin á að skila sér í algjöru réttlæti, sem aldrei er hægt að ná fram. Og ef mistök eru mannleg, eins og markið á Wembley forðum daga, þá er auðveldara að sætta sig við það en ef tæknin gerir mistök.

Stuðningsfólk Marokkó hefur verið mjög áberandi á HM í Katar.
Stuðningsfólk Marokkó hefur verið mjög áberandi á HM í Katar. AFP/Alberto Pizzoli

Íþrótt fólksins í Marokkó

Heimsmeistarakeppni er ekki fullkomlega vel heppnuð nema við fáum óvænt úrslit. Marokkó fór langt í Katar með góðum stuðningi áhorfenda. Á röddum þeirra mátti heyra hvers vegna fótboltinn er íþrótt fólksins. Liðið er það skipulagðasta á mótinu og nýtir sína styrkleika á frábæran hátt. Þar hlýtur góð þjálfun að koma til. Walid Regragui hefur unnið frábært starf með því að laga sitt lið að hinum vel heppnaða leikstíl Evrópuliða.

Í norðurafríska fótboltanum má sjá áhrif frá Sacchi, Mourinho, Guardiola, 4-3-3, ensku úrvalsdeildinni og reitaboltanum. Sama á við um lið Túnis sem vann Frakkland í riðlakeppninni.

Marokkó hefur fimm sinnum sótt um HM

Arabalöndin eiga sína eigin fótboltamenningu sem gæti styrkst með því að halda heimsmeistarakeppni. Marokkó hefur fimm sinnum sótt um að fá að halda HM. En FIFA leit fram hjá þjóðinni og lét Katar hafa keppnina. Þar er fótboltinn notaður sem pólitískt verkfæri. Peningarnir ráða.

Þeir sem stýra FIFA og UEFA taka of oft einstaklingsgróða fram yfir það sem kemur öllum til góða. Kjörið á Sepp Blatter sem forseta FIFA var stórt skref í þeirri þróun.

Stofnanir Evrópu þurfa að standa í lappirnar

Stofnanir Evrópu þurfa að standa í lappirnar. Í síðustu viku var upplýst að Katar hefði mútað háttsettum þingmönnum sem hefðu í staðinn tónað niður meðferðina sem farandverkafólk hefur fengið í Katar. En einstaklingshyggja er ekki lengur málið, heldur sjálfsbjargarviðleitni og þrautseigja.

Næsta stóra fótboltamótið í karlaflokki, EM 2024, fer fram í lýðræðisríki, Þýskalandi. Þar þarf að standa vörð um allt sem Evrópa stendur fyrir, frelsi, fjölbreytileika og jafnrétti samkvæmt lögum. Þetta eru líka gildi fótboltans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert