„Þetta var baráttusigur og við þurftum að hafa mikið fyrir þessu. Þetta voru líkamleg átök á köflum en það var flott hjá okkur að taka sigurinn í dag og þessa tvo punkta með okkur í milliriðil,“ sagði Ólafur Andrés Guðmundsson í samtali við mbl.is.
Ólafur skoraði sex mörk í 31:23-sigri Íslands á Marokkó á HM í handbolta í Egyptalandi í kvöld en sigurinn gulltryggði Íslandi sæti í milliriðli og tvö stig þar.
Marokkó fékk þrjú rauð spjöld í leiknum fyrir þrjú ruddaleg brot. „Þeir fengu þrjú rauð spjöld í fyrsta leik líka og þetta er svolítið allt eða ekkert hjá þeim þegar þeir fara í þessi brot. Það er ekkert gefið og þeir lenda aftan í, fara í andlit og þetta er allt öðruvísi handbolti en maður er vanur.
Ég vil ekki segja of mikið en manni stóð ekki á sama í seinni hálfleik og þetta var hættulegt. Við vinnum allir við að spila handbolta og maður vill ekki skemma ferilinn hjá neinum með ljótum brotum þannig að manni stóð ekki á sama í seinni hálfleik.
Þetta var kannski ekki ásetningur en þeir hafa séð mótið fjara út og þetta hefur verið pirringur. Hann á aldrei séns á að stoppa Viggó og þetta var glórulaust. Hann fékk líka rautt og síðan blátt spjald og fær væntanlega eitthvað leikbann og það verða afleiðingar,“ sagði Ólafur um varnartilburði Marokkó.
Marokkó komst í 5:4 snemma leiks en eftir það náði íslenska liðið undirtökunum og sleppti þeim aldrei. „Þeir spila mikið maður á mann í vörninni og það tók okkur smá tíma að finna glufurnar og hvar við vildum ráðast á þá. Það gekk illa í byrjun leiks en þegar leið á fundum við lausnir. Við höldum þeim líka í tíu mörkum í fyrri hálfleik, svo þetta var flottur varnarleikur líka. Við þurfum aðeins að laga að vinna boltann í hættulegum stöðum og ráðast á þá. Við verðum að gera það betur.“
Ólafur skoraði sex mörk í leiknum og voru nokkur þeirra eftir að íslenska liðið sundurspilaði vörn Marokkó og eftirleikurinn auðveldur fyrir Ólaf. „Við horfum á myndbönd af þeim til að finna glufur en ég átti kannski ekki alveg von á svona rosalega stórum götum, nánast í miðri vörninni hjá þeim. Við héldum bara áfram þegar þetta virkaði nokkrum sinnum í röð og höfðum þetta einfalt. Þegar við fáum svona færi verðum við að nýta þau og við gerðum það.“
Ísland leikur næst í milliriðli 3 og mætir þar Sviss, Frakklandi og Noregi. „Nú er komið aðeins meira líf í þetta. Þetta eru þrír hörkuleikir og við getum unnið hvaða lið sem er. Þetta verður spennandi og við byrjum að undirbúa okkur á morgun,“ sagði Ólafur.