Leikmaður Þórs fer á HM

Kostadin Petrov.
Kostadin Petrov. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Kostantin Petrov, línumaður Þórs frá Akureyri í fyrstu deild karla, hefur verið valinn í landsliðshóp Norður-Makedóníu fyrir HM í handbolta sem fram fer í janúar.

Frá þessu er greint á heimasíðu Þórs en áður hafði Petrov verið valinn í stærri æfingahóp í undirbúningi fyrir mótið en nú hefur verið greint frá því að hann verður í lokahópnum.

Petrov er stór og stæðilegur línumaður sem hefur verið meðal bestu leikmanna fyrstu deildarinnar á tímabilinu. Hann hefur verið í algjöru lykilhlutverki í Þórsliðinu sem hefur þó verið í smá brasi í vetur. Liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 10 stig eftir 11 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert