„Ég hlusta á tónlist og stundum finn ég eitthvað til þess að verða reiður út í,“ sagði Ómar Ingi Magnússon, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is sem framleiddur er af Studio M.
Ómar Ingi, sem er 25 ára gamall, er á meðal bestu handboltamanna heims í dag en hann er samningsbundinn Magdeburg í Þýskalandi.
„Það er barnalegt að segja þetta,“ sagði Ómar Ingi.
„Ef einhver heldur að hann geti stoppað mig þá kannski ímynda ég mér eitthvað í hausnum á mér og bý til smá núning á milli okkar,“ sagði Ómar Ingi meðal annars.