„Þetta er öðruvísi hlutverk,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is.
Sigvaldi, sem er 28 ára gamall, eignaðist sitt fyrsta barn í september á síðasta ári, soninn Jökul, ásamt sambýliskonu sinni Nótt Jónsdóttur.
„Við vorum á fæðingardeildinni í þrjá daga og ég man eftir því þegar ég setti krakkann fyrst inn í bíl,“ sagði Sigvaldi.
„Ég hugsaði með mér að ég þyrfti nú að passa mig aðeins núna í umferðinni og keyra varlega,“ sagði Sigvaldi meðal annars.