Erfiður lokakafli eftir hetjulega baráttu

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mátti þola tap, 30:24, í fyrsta leik liðsins í D-riðli á HM kvenna í handbolta í Stafangri í Noregi í dag. Var leikurinn sá fyrsti hjá Íslandi á lokamóti HM í tólf ár og sá fyrsti á stórmóti í ellefu ár.

Úrslitin þýða að líkurnar á að Ísland og Angóla leiki úrslitaleik um sæti í milliriðli í lokaumferð riðilsins aukast.

Það var augljóslega mikill skrekkur í leikmönnum Íslands í upphafi leiks og virtist ganga illa að ráða við spennustigið. Liðið gerði mörg mistök í sókninni fyrstu mínúturnar og var refsað grimmilega með eldsnöggum sóknum hjá slóvenska liðinu, sem oftar en ekki enduðu með mörkum.

Perla Ruth Albertsdóttir skorar fyrsta mark Íslands á mótinu.
Perla Ruth Albertsdóttir skorar fyrsta mark Íslands á mótinu. Ljósmynd/Jon Forberg

Sú byrjun gerði það að verkum að Slóvenía komst snemma sjö mörkum yfir, 11:4. Arnar Pétursson tók þá leikhlé og náði að stilla strengi. Elín Jóna Þorsteinsdóttir kom inn í markið, varði mjög vel og Elín Rósa Magnúsdóttir kom með mikinn kraft í sóknina sömuleiðis.

Með glæsilegum seinni hluta fyrri hálfleiks náði íslenska liðið að minnka muninn í þrjú mörk og voru hálfleikstölur 16:13.

Perla Ruth Albertsdóttir skoraði fjögur mörk í hálfleiknum. Elín Rósa Magnúsdóttir og nafna hennar Elín Jóna Þorsteinsdóttir áttu einnig flottan hálfleik, eftir að hafa byrjað á bekknum.

Andrea Jacobsen sækir að slóvenska markinu í dag.
Andrea Jacobsen sækir að slóvenska markinu í dag. Ljósmynd/Jon Forberg

Liðin skiptust á að skora í seinni hálfleik, en með góðum kafla um miðbik hans náði Ísland að minnka muninn í eitt mark, 20:19. Íslandi tókst hins vegar ekki að jafna og Slóvenía náði fjögurra marka forskoti á ný, þegar tíu mínútur voru eftir, 24:20.

Ísland tók þá leikhlé, skoraði tvö mörk í röð og minnkaði muninn í 24:22, þegar skammt var til leiksloka. Þá svaraði Slóvenía aftur með þremur mörkum og var íslenska liðið ekki líklegt til að jafna eftir það. 

Hildigunnur Einarsdóttir fagnar sínu fyrsta marki á stórmóti.
Hildigunnur Einarsdóttir fagnar sínu fyrsta marki á stórmóti. Ljósmynd/Jon Forberg

Íslenska liðið sýndi gríðarlegan styrk í að minnka muninn í eitt mark, eftir að hafa mest lent sex mörkum undir, en að lokum dugði það ekki til gegn reynslumeira liði Slóvena, sem nýttu sér þá reynslu á lokakaflanum. 

Perla Ruth Albertsdóttir, Sandra Erlingsdóttir og Thea Imani Sturludóttir skoruðu fimm mörk hvor fyrir Ísland. Elín Rósa Magnúsdóttir gerði fjögur. Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði níu skot í íslenska markinu. 

Næsti leikur Íslands í riðlinum er gegn Ólympíumeisturum Frakklands á laugardag. 

Ísland 24:30 Slóvenía opna loka
60. mín. Tjasa Stanko (Slóvenía) skoraði mark Brýtur sér leið í gegn og skorar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert