Áfall fyrir Sviss rétt fyrir HM

Manuel Zehnder er leikmaður Magdeburg.
Manuel Zehnder er leikmaður Magdeburg. AFP/Odd Andersen

 Ítalía hafði betur gegn Sviss, 31:29, í vináttuleik í gærkvöldi fyrir heimsmeistaramót karla í handbolta í janúar og lykilleikmaður Sviss fór meiddur af velli í leiknum.

Manuel Zehnder meiddist á hné um miðjan seinni hálfleik og óttast er að meiðslin séu alvarleg en hann fer í rannsóknir um helgina. Hann var markahæstur í 1. deild í Þýskalandi á síðustu leiktíð.

Zehnder er liðsfélagi Ómars Inga Magnússonar í Magdeburg í Þýskalandi en liðið hefur verið að glíma við mikil meiðslavandræði. Ómar Ingi er meiddur og þeir Oscar Bergendahl, Felix Claar, Tim Hornke og Philipp Weber.

Heimsmeistaramótið hefst 15. janúar og Sviss mætir Tékklandi í fyrsta leik A-riðils 17. janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert