Góðar fréttir fyrir Frakka

Dika Mem reynir að skjóta framhjá Elliða Snæ Viðarssyni í …
Dika Mem reynir að skjóta framhjá Elliða Snæ Viðarssyni í leik á EM fyrir þremur árum. AFP

Dika Mem, einn besti handboltamaður heims, hefur fengið grænt ljós frá félagi sínu, Barcelona, til að leika með Frökkum á heimsmeistaramótinu sem hefst í næstu viku.

Mem hefur verið frá keppni vegna meiðsla en er í 22 manna hópi sem Guillaume Gille landsliðsþjálfari valdi til æfinga rétt fyrir jól og liðið kom saman á fimmtudaginn.

Tvísýnt hefur verið um fimm leikmenn í franska hópnum, þar á meðal Mem, Elohim Prandi og Kentin Mahé.

Frakkar taka þátt í þriggja liða alþjóðlegu móti á heimavelli í Strasbourg til undirbúnings fyrir HM en þar mæta þeir Tékkum á miðvikudaginn og Portúgölum á föstudaginn.

Frakkar eru síðan í C-riðli með Katar, Kúveit og Austurríki á HM og mæta líkast til Ungverjalandi, Hollandi og Norður-Makedóníu í milliriðli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert