Delo, stærsta dagblað Slóveníu, segir tapið fyrir Íslandi á HM 2025 í handbolta karla í gærkvöldi hafa verið sársaukafullt en að sigur Íslendinga hafi verið sanngjarn.
„Sársaukafull kennslustund fyrir slóvenska landsliðið og tap, íslenska liðið var miklu betra. Þrátt fyrir að vera sigurstranglegra liðið á pappírum sýndu Slóvenar ekki fram á það.
Líkt og í vináttulandsleikjum fyrir mótið var mikið af vandamálum í sóknarleiknum þar sem liðið tapaði meðal annars átta boltum einungis í fyrri hálfleik,“ sagði meðal annars í umfjöllun Delo um leikinn.
„Fyrstu tíu mínúturnar í leiknum gerðist nákvæmlega það sem við óttuðumst mest. Við féllum í íslensku gryfjuna og gerðum helling af tæknifeilum. Við lentum fljótt þremur eða fjórum mörkum undir.
Svo reyndum við að ná í skottið á þeim en tókst það ekki vegna þess að við gerðum allt að níu tæknifeila í fyrri hálfleik og vegna stórkostlegra markvarslna íslenska markvarðarins,“ sagði Uros Zorman, þjálfari Slóveníu, í samtali við Delo.