Króatíski handboltamaðurinn David Mandic hefur lokið leik á heimsmeistaramótinu í Króatíu, Danmörku og Noregi.
Þetta tilkynnti leikmaðurinn eftir þriggja marka sigur Króata gegn Slóveníu, 29:26, í milliriðli fjögur í Zagreb í gær en fingur Mandic fór úr lið í leiknum í gær.
Króatinn lék þó leikinn á enda en greindi frá því eftir leikinn í samtali við fjölmiðla að hann þyrfti að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna.
Króatía mætir Ungverjalandi í átta liða úrslitum mótsins í Zagreb á morgun.
Þetta er ekki síður áfall fyrir Melsungen, toppliðið í Þýskalandi, en Mandic leikur með því eins og þeir Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson.