Ísland á meðal neðstu liða

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska landsliðsins.
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska landsliðsins. mbl.is/Eyþór

Íslenska karlalandsliðið í handbolta er í þriðja neðsta sæti yfir fjölda sókna í hverjum leik á HM 2025.

Ísland fór alls í 318 sóknir í leikjunum sex sem liðið spilaði í riðli og milliriðli í Zagreb, sem gera 53 sóknir að meðaltali í leik.

Aðeins tvær þjóðir hófu færri sóknir á mótinu, Austurríki með alls 308 sóknir og Tékkland með 303 sóknir. Austurríki fór að meðaltali í rúmlega 51 sókn og Tékkland í 50,5 sóknir.

Þetta kemur fram í tölfræði sem Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur tekið saman og birt á heimasíðu sinni.

Hver sókn tók lengri tíma

Íslenska liðið hefur því tekið sér meiri tíma í hverja sókn en kannski hefði mátt búast við af liði sem Snorri Steinn Guðjónsson þjálfar, en í fyrstu leikjunum undir hans stjórn lagði liðið áherslu á að keyra upp hraðann, sem var einkennismerki Snorra Steins þegar hann þjálfaði karlalið Vals.

Ekki þarf að vera að um nokkuð slæmt sé að ræða þar sem Ísland stóð sig afar vel á mótinu þrátt fyrir að detta úr leik eftir milliriðla.

Aðeins einn leikur tapaðist, gegn Króatíu, og varð Ísland fyrsta liðið sem fer ekki áfram með átta stig eftir að núverandi fyrirkomulagi heimsmeistaramótsins var komið á koppinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert