Pólverjar sluppu svo sannarlega fyrir horn gegn Bandaríkjamönnum þegar þeir tryggðu sér Forsetabikarinn á heimsmeistaramóti karla í handknattleik í kvöld.
Liðin unnu sinn hvorn riðilinn í keppni átta neðstu liða heimsmeistaramótsins og mættust því í úrslitaleiknum í Porec í Króatíu þar sem 25. sætið og Forsetabikarinn voru í húfi.
Bandaríkjamenn voru óvænt yfir í hálfleik, 13:11, en staðan var 21:21 eftir venjulegan leiktíma.
Pólverjar náðu loks að tryggja sér sigur í vítakastkeppni, 3:1.