Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í liði Barein höfnuðu í 29. sæti á heimsmeistaramóti karla í handknattleik eftir sigur á Alsír í leik um sætið, 29:26, í Porec í Króatíu í dag.
Lið Barein vann þar með tvo af sjö leikjum sínum á mótinu. Í undanriðlinum í Zagreb tapaði liðið 36:22 fyrir Króatíu, 35:24 fyrir Egyptalandi og 26:25 fyrir Argentínu, og missti því naumlega af því að komast í milliriðil.
Í stað þess fór Barein í Forsetabikarinn þar sem liðið vann Kúbu 39:26, tapaði 31:27 fyrir Japan og 30:28 fyrir Bandaríkjunum, og lauk svo keppni með sigrinum í dag.