Seif Elderaa, leikstjórnandi Egyptalands, var útnefndur maður leiksins eftir leik Frakklands og Egyptalands í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Zagreb í Króatíu í gær.
Leiknum lauk með dramatískum sigri Frakklands, 34:33, þar sem Luka Karabatic skoraði sigurmarkið þegar þrír hundraðshlutar úr sekúndu voru til leiksloka.
Seif Elderaa stýrði sóknarleik Egypta í leiknum, ásamt því að skora sex mörk, en hann hágrét þegar hann tók við verðlaununum fyrir besta mann leiksins.
Myndband af þessu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Heartbreaking scenes from the Player of the Match 🇪🇬💔 A brave game from Egypt and Seif Elderaa, who gave it their all on the court tonight 🙏#CRODENNOR2025 #inspiredbyhandball pic.twitter.com/l1DAVJ3AHR
— International Handball Federation (@ihfhandball) January 28, 2025