Heimsmeistararnir í undanúrslit

Mathias Gidsel og félagar í Danmörku lentu ekki í vandræðum …
Mathias Gidsel og félagar í Danmörku lentu ekki í vandræðum með Brasilíu. AFP/Bo Amstrup

Ríkjandi heimsmeistarar Danmerkur höfðu örugglega betur gegn Brasilíu, 33:21, í átta liða úrslitum HM karla í handbolta í Ósló í Noregi í dag.

Í undanúrslitum á föstudag mætir Danmörk annað hvort Portúgal eða lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi. Portúgal og Þýskaland mætast í kvöld.

Danir hófu leikinn af geysilegum krafti, Brasilíumennirnir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið og munurinn var orðinn sjö mörk, 10-3, þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður.

Danska liðið var áfram við stjórn og komst til að mynda í 13:7 en þá tóku Brasilíumenn vel við sér og tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk, 15:12, áður en fyrri hálfleikurinn var úti.

Danir hófu hins vegar síðari hálfleikinn einnig af krafti og komust fljótt fimm mörkum yfir með því að skora fyrstu tvö mörk hálfleiksins.

Eftir það var við ramman reip að draga fyrir Brasilíu sem komst ekki nær Danmörku en fjórum mörkum það sem eftir lifði leiks. Danir gáfu raunar bara í og unnu að lokum geysilega öruggan tólf marka sigur.

Rasmus Lauge, Mathias Gidsel og Emil Jakobsen voru markahæstir hjá Danmörku með sex mörk hver.

Markahæstur í leiknum var Vinícios Carvalho með sjö mörk fyrir Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert