Dagur í úrslitaleikinn með Króatana

Dagur Sigurðsson ræðir við einn leikmanna sinna í Arena Zagreb …
Dagur Sigurðsson ræðir við einn leikmanna sinna í Arena Zagreb í kvöld. AFP/Anne-Christine Poujoulat

Dagur Sigurðsson er kominn með lið Króatíu í úrslitaleikinn á heimsmeistaramóti karla í handknattleik eftir magnaða frammistöðu liðsins og sigur gegn öflugu liði Frakklands í Zagreb í kvöld, 31:28.

Stemningin í Arena Zagreb sló Frakkana greinilega út af laginu í fyrri hálfleiknum, rétt eins og þegar Króatar völtuðu yfir íslenska liðið í fyrri hálfleik á dögunum.

Þeir léku ekki síður gegn Frökkunum og náðu mest níu marka forskoti í fyrri hálfleik. Komust í 11:6, 15:7 og svo 18:9, áður en Frakkar skoruðu tvö síðustu mörkin og staðan var 18:11 í hálfleik.

Frakkar minnkuðu muninn fljótlega í fjögur mörk í seinni hálfleik, 19:15, en Króatar héldu þeim fjórum til sex mörkum frá sér þar til Frakkar löguðu stöðuna í 27:24.

Dika Mem minnkaði muninn aftur í þrjú mörk, 29:26, þegar fjórar mínútur voru eftir en Filip Glavas svaraði fyrir Króata úr vítakasti mínútu síðar, 30:26. Melvyn Richardson skoraði úr víti fyrir Frakka, 30:27, en Marin Sipic svaraði fyrir Króata, 31:27, þegar rúm mínúta var eftir og þar með var ljóst að þeir væru á leið í úrslitaleikinn.

Króatar leika þar með til úrslita gegn Dönum eða Portúgölum í Bærum í Noregi á sunnudaginn en þeir mætast í seinni undanúrslitaleiknum annað kvöld. Frakkar leika um bronsverðlaunin sama dag.

Zvonimir Srna og Marin Jelinic skoruðu sjö mörk hvor fyrir Króata og Ivan Martinovic sex. Dika Mem skoraði átta mörk fyrir Frakka og Ludovic Fabregas fjögur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert