Getum ekki alltaf treyst á einstaklingsgæðin

Þjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson nær vel til leikmannanna, að mati …
Þjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson nær vel til leikmannanna, að mati Erlings, en þyrfti að vera með fleiri plön í gangi í vörn og sókn. Morgunblaðið/Eyþór

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hafnaði í 9. sæti á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Króatíu, Danmörku og Noregi.

Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni, gegn Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóveníu, og komst áfram í milliriðlakeppnina með fullt hús stiga eða fjögur stig.

Liðið lagði Egyptaland og Argentínu í milliriðlinum en tapaði fyrir Króatíu sem gerði það að verkum að Króatía, Egyptaland og Ísland enduðu öll með átta stig. Króatía og Egyptaland fóru áfram í átta liða úrslitin þar sem liðin voru með bestu innbyrðismarkatöluna en Ísland sat eftir með sárt ennið.

„Ef ég man rétt var okkur spáð í kringum 9.-10. sæti, meðal annars hjá Brian í HR, og við erum á pari við það,“ sagði Erlingur Birgir Richardsson, yfirþjálfari hjá Mödling í Austurríki, en hann gerði ÍBV að Íslandsmeisturum árið 2023 og HK árið 2012 og þá hefur hann einnig stýrt landsliðum Hollands og Sádi-Arabíu á ferlinum.

„Miðað við það hvernig mótið spilast er ansi fúlt að detta úr leik eftir fimm sigra og eitt tap. Það er mjög stutt á milli í þessu og á endanum er það markatalan sem gerir útslagið. Þetta er í fyrsta sinn sem lið með átta stig kemst ekki áfram sem gerir þetta ennþá meira svekkjandi en 9. sætið er bara nokkuð góður árangur. Það má heldur ekki gleyma því að þú vinnur þér líka inn sæti frá 8-12 með góðri frammistöðu þó svo að ekki náist að komast í undanúrslit,“ sagði Erlingur.

„Samkvæmt spám er árangurinn viðundandi en ef horft er til stigafjölda þá áttum við skilið að fara lengra. Ég held að reynsluleysi Snorra Steins hafi aðeins komið í ljós á móti Króötunum og hann hefur aðeins komið inn á það sjálfur. Við brugðumst ekki rétt við stöðunni sem var komin upp en þetta fer í reynslubankann hjá honum og liðinu.

Við erum með mjög spræka leikmenn á góðum aldri sem standa sig vel með sínum félagsliðum. Það virðist vera góð stemning í hópnum og það er ákveðin útgeislun líka yfir leikmönnum liðsins. Snorri virðist ná vel til leikmannanna og miðað við viðtöl og annað eru leikmenn líka virkir þátttakendur í allri ákvarðanatöku. Ég skynja jákvæða áru yfir þessu liði.“

Breytt hugmyndafræði

Getur Ísland unnið til verðlauna á stórmóti í náinni framtíð?

Erlingur Birgir Richardsson hefur m.a. stýrt landsliðum Hollands og Sádi-Arabíu.
Erlingur Birgir Richardsson hefur m.a. stýrt landsliðum Hollands og Sádi-Arabíu. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

„Já, ég held það, en við þurfum samt að fara að vinna eftir ákveðinni hugmyndafræði. Við getum ekki alltaf treyst eingöngu á einstaklingsgæðin. Hugmyndafræðin sem unnið er eftir þarf að vera markvissari og sterkari, alveg frá Handknattleikssambandi Íslands og út í félögin.

Við búum til mjög mikið af leikmönnum en hugmyndafræðin hjálpar okkur ekki. Við þurfum að virkja plan B og plan C og hvernig við ætlum til dæmis að nýta okkur stórar skyttur. Það þarf að byrja að vinna eftir fastara plani og sú vinna þarf að byrja strax í yngri flokkunum, þaðan upp í yngri landsliðin, meistaraflokkana og svo út í A-landsliðið,“ bætti Erlingur við í samtali við Morgunblaðið.

Viðtalið í heild sinni er í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert